Strætó .. Þó þú missir af einum, þá kemur bara
næsti
Blandari í eldhúsið .. þú þarft að hafa einn,
en ert ekki viss til hvers
Auglýsingar .. þú getur ekki trúað einu orði
sem þeir segja
Tölvur .. erfitt að átta sig á þeim og hafa
sjaldnast nægjanlegt minni
Kælibox .. fylltu þá af bjór og þú getur
farið með þá hvert sem er
Ljósritunarvélar .. þú þarft þá til að
fjölfalda, en þar með er það upptalið
Krullujárn .. þau eru alltaf heit og alltaf í
hárinu á þér
Íslenski fjármálamarkaðurinn .. so óskaplega
lengi að þroskast
Stjörnuspár .. segja þér hvað þú átt að gera
og hafa yfirleitt rangt fyrir sér
Gluggaveður .. gaman að horfa á en ekki mikið
meira
Maskari .. hverfur við fyrstu merki um
tilfinnalegt uppnám
Bílastæði .. þau bestu eru nú þegar frátekin
og þau sem eru eftir eru fyrir fatlaða eða eru einstaklega
lítil
Poppkorn .. það veitir þér fullnægju en
aðeins í skamman tíma
Snjóstormur .. þú veist aldrei hvenær hann er
að koma, hversu margir sentimetrar það verða né heldur hve
lengi hann mun endast
Notaðir bílar .. auðvelt að eignast, fyrir
lítinn pening og óáreiðanlegir
Sumarfrí .. þau virðast aldrei vera nógu
löng
Veðrið .....ekkert er hægt að gera til að
breyta því
Hraðbankar .. um leið og búið er að taka út,
hefur þú engin not fyrir hann lengur
Banani .. því yngri sem hann er því stinnari
er hann
Smokkar .. einnota drasl
Fleiri Staðreyndir um karlmenn
1. Eina ástæða þess að karlmenn eru til er sú
að titrarar geta hvorki dansað né heldur keypt
drykki.
2. Það er allt eins gott að ná sér bara í
yngri menn. Þeir þroskast hvort sem er aldrei.
3. Karlmaður sem getur klætt sig upp án þess
að líta út eins og krumpuð útgáfa af Forrest Gump er
örugglega hommi.
4. Karlmenn eru allir eins. Þeir eru bara með
ólík andlit svo við konurnar getum þekkt þá í
sundur.
5. Skilgreining á hugtakinu piparsvein: Maður
sem missti af því tækifæri að gera konu
óhamingjusama.
6. Ef karlmaður spyr þig hverjar séu
uppáhaldsbækurnar þínar þá skaltu hiklaust svara:
"Bankabækur"
. 7. Allir karlmenn eru skapaðir jafnir. Því
miður.
8. Ef karlmaður spyr þig hvort hann sé sá
fyrsti sem þú hefur sofið hjá, þá skaltu svara: "Ég býst við
því, ég kannast eitthvað við þig."
9. Karlmenn eru eins og súkkulaði; sætir og
stefna alltaf beint á mjaðmirnar.
Hvað þarf marga karlmenn til að skipta um
klósettrúllu? Við vitum það ekki, þetta hefur aldrei
gerst!
Af hverju er svona erfitt að finna karlmenn
sem eru yndislegir, umhyggjusamir og flottir í útliti og
vexti ? Vegna þess að þeir eiga allir kærasta
!!
Af hverju eru giftar konur þéttari í holdum
en konur sem eru á lausu ? Þegar sú sem er á lausu kemur heim
og sér hvað er í ísskápnum, lokar hún honum og fer í rúmið,
en þegar sú gifta kemur heim sér hún hvað er í rúminu og fer
í ísskápinn !!
Hvernig færðu karlmann til að gera
maga-æfingar ? Settu fjarstýringuna á milli tánna á
honum!
Hvað sagði Guð þegar hann hafði skapað
manninn ? Ég hlýt að geta gert betur !!
Hvað sagði Guð þegar hann hafði skapað Evu ?
Æfingin skapar meistarann!
Karlmaðurinn spurði Guð: "Af hverju gerði þú
konuna svona fallega ?" Guð svarar: "Svo þú getir elskað
hana". En Guð, spyr karlmaðurinn aftur. "Af hverju gerðir þú
hana svona vitlausa?" Guð svarar: "Svo hún geti elskað ykkur
karlmenn"
Af hverju ráfaði Móses um eyðimörkin í 40 ár
? Vegna þess að hann vildi ekki spyrjast
vegar!